Sorta-Clear Series

SORTA-Clear sílikon eru glær/gagnsæ og harna við stofuhita með litlum sem engum samdrætti. Þau hafa gríðarlegt þanþol og mikinn teygjanleika. Plastefni, epoxy, gifs, vax og lágsuðu málmblöndur eru tilvalin til að nota í afsteypugerð með Sorta-Clear sílikonunum okkar ÁN þess að nota mótlosunarefni. Þau henta einstaklega vel í frumgerðasmíði, skartgripahönnun og mótagerð þar sem sýnileiki módels skiptir miklu máli (þegar skera þarf á mót til að opna).
SORTA-Clear 18, 37, og 40 sílikon eru einnig örugg til matargerðar, þ.e. að búa til mót sem má nota í bakstri og matgargerð og þola mikinn hita. Hægt er að nota mótinn til að búa til súkkulaði, klaka og annað matarkyns.